Spánareignir - La Marina SPÁNN

35.900.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    78 m2

Tilvísunarnúmer:

908471

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ EL PINET STRÖNDINA Í LA MARINA – MIKIÐ INNIFALIÐ – GÖNGUFÆRI Á STRÖND* *2 SVEFNHERBERGI – 2 BAÐHERBERGI – SUNDLAUG – SÉRGARÐUR EÐA ÞAKVERÖND – BÍLASTÆÐI OG GEYMSLA*


Stórglæsilegar og einstaklega vel hannaðar nýjar íbúðir á einum eftirsóttasta stað Costa Blanca, í stuttri göngufjarlægð frá hinni fallegu og ósnortnu El Pinet sandströnd við La Marina, um 15–20 mínútna akstur frá Alicante flugvellinum.
Íbúðirnar eru í nútímalegum lokuðum íbúðakjarna með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði og bjóða upp á glæsilegan frágang, vandaðar innréttingar og allt sem þarf til að flytja beint inn eða hefja útleigu. Hér er einstakt tækifæri til að eignast glæsilega íbúð á frábærum stað þar sem ósnortin náttúra, strandlíf og spænsk stemning gerir lífið dásamlegt.

Allar upplýsingr veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. 0034 615 112 869
 

Nánari lýsing
Í boði eru glæsilegar íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús mynda opið og einstaklega notalegt rými með stórum rennihurðum út á verönd eða svalir.

Velja má á milli:
Jarðhæða með  sérgarði.
Miðhæða með góðum svölum.
Efstu hæða með sér þakverönd þar sem hægt er að njóta sólar allt árið um kring.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=145ISK.
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 248.000 evrum (ISK 35.900.000) + 9%
skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Mikið er innifalið í verði, og því eru um sérlega góð kaup að ræða:
Falleg húsgögn
Rafmagnstæki
Lýsing
Fullfrágengin baðherbergi
Sér geymsla og einkabílastæði í bílakjallara

Íbúðirnar verða afhentar í nóv. 2027.
Aðgangur að glæsilegum lokuðum sundlaugargarði með fallegum sameiginlegum svæðum.
Frábær staðsetning.

El Pinet er eitt fallegasta strandsvæði Costa Blanca þar sem langar gullnar sandstrendur og friðlýst náttúra skapa einstakt umhverfi. Aðeins örstutt göngufæri er á hina vinsælu El Pinet strönd með strandveitingastöðum og fallegum gönguleiðum meðfram sjónum.
Í nágrenninu eru verslanir, veitingastaðir og öll helsta þjónusta sem þarf til daglegs lífs.

La Marina er sjarmerandi spænskur strandbær þar sem ríkir notaleg stemning allt árið um kring. Svæðið hefur notið mikilla vinsælda meðal Íslendinga og annarra Norðurlandabúa vegna einstaklega góðs loftslags, fallegra stranda og stuttrar fjarlægðar frá Alicante.

Costa Blanca er þekkt fyrir eitt besta loftslag Evrópu og á El Pinet svæðinu eru að jafnaði um 300 sólardagar á ári, sem gerir svæðið einstaklega vinsælt bæði sem heilsársheimili og sumarleyfisstað.

Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á frábærum stað.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílakjallari, þakverönd, sér garður, strönd, golf, húsgögn,
Svæði: Costa Blanca, La Marina, El Pinet,


 

Kort af svæðinu