Spánareignir - La Zenia SPÁNN

33.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Raðhús / Raðhús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    0 m2

Tilvísunarnúmer:

908218

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *GLÆSILEGT ENDARAÐHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* *STRÖNDIN OG LA ZENIA BOULEVARD Í GÖNGUFÆRI* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG, STÆÐI Á LÓÐ, GARÐUR OG ÞAKSVALIR* *3 SVEFNHERBERGI OG 2 BAÐHERBERGI* *FRÁBÆRT VERÐ*

Fallegt endaraðhús á þremur hæðum á hinu sívinsæla svæði La Zenia, um 50 mín akstur suður frá Alicante flugvelli. Rúmgóður sérgarður sem snýr í suðaustur og því tilvalið að njóta þar sólar og samveru allan daginn, allt árið um kring. Sér bílastæði á lóð. Sameiginleg sundlaug. Frábær staðsetning, öll þjónusta, strönd og verslunarmiðstöð í göngufæri.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.

Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869

Nánari lýsing:
Gengið er inn í húsið á jarðhæð og inn í bjart opið rými sem sameinar stofu og borðstofu. Hálfopið er inn í eldhús svo auðvelt er að spjalla við gesti í stofunni meðan máltíð er undirbúin en á sama tíma er það aðskilið rými. Á hæðinni er einnig lítið baðherbergi og út af eldhúsi er gengið út á litla verönd.

Á annarri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með innbyggðum fataskápum og úr öðru þeirra er gengið út á góðar svalir. Rúmgott baðherbergi. Er gengið er upp á þriðju hæð er þar að finna þriðja svefnherbergið sem einnig er mjög rúmgott og þaðan er útgengi á stórar þaksvalir.

Góð sundlaug er í sameign innan sameiginlegs, snyrtilegs íbúðakjarna sem er staðsettur í rólegu umhverfi og einstaklega vel staðsettur með tilliti til þjónustu og afþreyingar.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.

Göngufæri er niður á ströndina í La Zenia og Cabo Roig. Einnig er La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í þægilegu göngufæri sem og laugardagsmarkaðurinn og úrval veitingastaða og verslana. Um 50 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante.

Hér er um að ræða mjög góðar eign á góðu verði á hinu vinsæla La Zenia svæði. Svona gullmolar koma sjaldan í sölu og stoppa stutt.

Einstakt tækifæri fyrir fólk sem kann og vill njóta lífsins í fallegu umhverfi.

Verð 230.000 Evrur (ISK 33.300.000) + 9% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Gengi 1Evra=145ISK.


Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: sér garður, sér stæði, sameiginleg sundlaug, loftkæling, strönd,
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

 

Kort af svæðinu