SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝLEG ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ* *SÉR GARÐUR* *STÓRT SAMEIGINLEGT ÚTISVÆÐI OG SUNDLAUG* *VERSLANIR OG VEITINGASTAÐIR Í GÖNGUFÆRI* *BÍLASTÆÐI INNI Á LOKAÐRI LÓÐ* *FULLBÚIN HÚSGÖGNUM OG HÚSBÚNAÐI*Glæsileg og vönduð íbúð með stórri verönd og sér garði. Húsið var byggt 2024 og er eignin því sem ný. Íbúðin er í mjög góðu ástandi og selst fullbúin húsgögnum og húsbúnaði, rafmagnstækjum og öllu sem þarf til að flytja beint inn og byrja að njóta frá fyrsta degi. Íbúðin er 79 fm og telur 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Útgengi út á verönd frá stofu. Gott aðgengi er í sameiginlegan sundlaugargarð sem er beint fyrir framan og er sérlega fallegur með góðri aðstöðu. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869, berta@spanareignir.isNánari lýsing:Komið er inn í forstofu. Þaðan er gengið inn í opið rými þar sem eldhús er opið við stofu og borðstofu, og gengið er út á verönd um stóra rennihurð frá stofu. Frá verönd er horft yfir fallegan sundlaugargarðinn. Svefnherbergin eru tvö, bæði með innbyggðum skápum. Annað svefnherbergið er með fullbúnu sér baðherberg. Hitt baðherbergið er einnig með góðri sturtu. Íbúðin er fullbúin vönduðum húsgögnum og húsbúnaði ásamt útihúsgögnum. Bílastæði er á lokaðri lóð.
Vandaður og fallegur, vel hirtur lokaður sundlaugargarður með góðri sameiginlegri sólbaðsaðstöðu.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa og La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir íá svæðinu, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Um 30-40 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante. Göngufæri við heilsugæslustöð, matvöruverslanir, góða veitingastaði og miðbæ Ciudad Quesada.
Hér er um að ræða mjög góða eign í topp standi á frábæru verði í hinu vinsæla Quesada hverfi í Rojales. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem kann og vill njóta lífsins í fallegu umhverfi.
Verð aðeins 359.000 evrur + kostn. (ISK 52.000.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=145ISK) Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.
Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, húsgögn, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, Quesada,