Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

108.700.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    172 m2

Tilvísunarnúmer:

904339

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PENTHOUSEÍBÚÐ Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*

Sérlega glæsileg og vel hönnuð ný penthouseíbúð á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð íbúð,  tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar  svalir með frábæru útsýni og auk þess stór einkaþakverönd með frábæru útsýni og einkasundlaug. Matarlyfta gengur upp á þaksvalirnar. Sér bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu.  Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.  

Lýsing:

Glæsileg íbúð, stórar  svalir út frá stofu og einkaþakverönd með einkasundlaug, samtals er um að ræða  172fm. sérafnotarými. Á þakveröndinni er glæsileg aðstaða, sér sundlaug og gott rými til að njóta lífsins með fjölskyldu og vinum.  Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Sér bílastæði í bílakjallara fylgja ásamt sér geymslu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.

ÞESSI ÍBÚÐ ER Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI OG ER TILBÚIN TIL AFHENDINGAR STRAX.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti á baðherbergjum.
rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

UM ER AÐ RÆÐA GLÆSILEGA PENTHOUSEÍBÚÐ MEÐ ÖLLUM ÞÆGINDUM.
Verð miðað við 1Evra=145ISK.
2 svefn. + 2 baðh.:
Verð 750.000 evrur + kostn. (108.700.000ISK) + 10% skattur og ca 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%. 

ÍBÚÐIN AFHENDIST FULLBÚIN HÚSGÖGNUM OG RAFMAGNSTÆKJUM OG ÞVÍ HÆGT AÐ FLYTJA INN STRAX.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, einkasundlaug á þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu