Spánareignir - Los Montesinos SPÁNN

64.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    162 m2

Tilvísunarnúmer:

902779

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*NÝTT Í SÖLU* *GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Í LA HERRADA - LOS MONTESINOS* *SNÚA Í SUÐAUSTUR* *FRÁBÆRT VERÐ*


Glæsileg og vel hönnuð rúmgóð einbýlishús á tveimur hæðum. Aðeins örfá hús í boði. Stór verönd og garður með einkasundlaug og góðar svalir. 

Verkefnið er hannað með miðjarðarhafslífsstílinn að leiðarljósi og sameinar nútímalega hönnun, björt og opin rými, hreinar línur og tengingu milli inni- og útisvæða. Hvert hús stendur á einkalóð með eigin sundlaug og rúmgóðum veröndum sem skapa fullkomið umhverfi til að njóta útiveru allt árið um kring. Staðsetningin í La Herrada, Los Montesinos, er afar góð, nálægt allri helstu þjónustu, fallegri náttúru, golfvöllum og aðeins í stuttri akstursfjarlægð frá nokkrum af bestu ströndum Costa Blanca. Húsin skera sig úr fyrir vandaða og hagnýta hönnun með opnum stofu- og borðstofurýmum, stórum gluggum og gæðaefnum sem skapa rólegt, þægilegt og fágað andrúmsloft. Innréttingarnar hafa verið hannaðar með fjölbreyttan lífsstíl í huga og bjóða upp á björt og notaleg rými sem eru bæði nútímaleg og tímalaus.

Þar sem verkefnið er enn á frumstigi gefst kaupendum kostur á að sérsníða skipulag og frágang eftir eigin óskum og skapa þannig heimili sem hentar þeirra þörfum fullkomlega.

GOTT SKIPULAG: þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi og auk þess gestasnyrting. Rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa í björtu opnu rými með góðri tengingu við stóra verönd. Stór sér garður með einkasundlaug, flottu bbq svæði og sólbaðsaðstöðu. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is. 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.


Nánari lýsing:
Aðal hæð: Rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Stór hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Gestasnyrting. Geymsla/þvottahús.

Efri hæð: Tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og 33 fm svalir. 

Rúmgóður garður með einkasundlaug og grillaðstöðu. Eldhústæki, þvottavél og loftkæling fylgja með. Bílastæði á lóð.
Rafmagnstæki í eldhúsi, þvottavél og air con fylgir. 

Bílastæði á lóð.

Örfá hús í boði!!!
Verð frá 445.000 evrum (64.500.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Verð miðað við 1EVRA = ISK145

Afhending áætluð í febrúar 2027.

Frábær eign á góðum stað fyrir þá sem vilja njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Citrus Horizon Villas býður upp á einstakt tækifæri fyrir þá sem leita að framúrskarandi hönnun, gæðum og ekta miðjarðarhafslífsstíl í glæsilegu og eftirsóknarverðu umhverfi.

Los Montesinos er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og ýmsu skemmtilegu, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Los Montesinos.  Ciudad Quesada og Dona Pepa, eru stutt frá, vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið. Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Los Montesinos,

Kort af svæðinu