Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

43.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    100 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

900122

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST PENTHOUSE Á LAS COLINAS Á FRÁBÆRU VERÐI* *37FM SÓLRÍKAR SVALIR FRÁ STOFU* *SJÁVARÚTSÝNI* *LYFTA OG SÉR STÆÐI* *FALLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR* 

FRÁBÆR KAUP.
Eignin skiptist í 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Stofa og eldhús eru í björtu rými með útgengi út á stórar 37 fm svalir. Eignin snýr í suðaustur. 
Eigninni fylgir sér geymsla og sér stæði. Lyfta í húsinu. 
Sundlaugargarðurinn er stórglæsilegur, og nóg pláss fyrir alla. 
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandaða eign á frábæru verði á þessum vinsæla stað. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Einstakt gróið umhverfi, með allt það besta sem Las Colinas hefur upp á að bjóða rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Nánari upplýsingar: Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 299.000 evrur  (43.300.000 ISK,  gengi 1Evra=145ISK)

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: stórar svalir, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu