Spánareignir - El Raso SPÁNN

43.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    80 m2

Tilvísunarnúmer:

884928

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR - SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*

Stórglæsilegar og vel hannaðar  glænýjar 3ja herb. íbúðir í El Raso, frábærum litlum bæ á Guardamar svæðinu, um 30 mín akstur suður af Alicante.  Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa og eldhús opið við borðstofu.  Fallegar innréttingar.
Hægt er að velja um íbúð á jarðhæð með sérgarði, miðhæðum með góðum svölum eða efstu hæð með  sér þaksvölum.
Sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri aðstöðu, grænu svæði, leiksvæði fyrir börnin,  líkamsræktarstöð, innisundlaug og SPA. Sameiginlegt vinnurými í sameign, sérlega hentugt fyrir þá sem vinna að heiman.
Einkabílastæði í bílakjallara. 
Frábær kaup.


Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277. karl@spanareignir.is.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 5-10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verslanir, veitingastaðir og þjónusta á jarðhæð, og auk þess enn meira úrval í stuttu göngufæri. Örstutt á vinsæla sítrónumarkaðinn á sunnudögum.

Þessar íbúðir eru að fara hratt enda frábært verð og staðsetning.
Fyrsti áfangi uppseldur. Áfangi II var að koma í sölu.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

Verð miðað við gengi 1evra=145ISK:
3ja herb. búðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 299.000 Evrum (ISK. 43.300.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13% kostnaður við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, bílastæði, 
Svæði: Costa Blanca, El Raso,

Kort af svæðinu