Spánareignir - Torrevieja Miðbær SPÁNN

63.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    217 m2

Tilvísunarnúmer:

882305

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*PENTHOUSE Í HJARTA TORREVIEJA* *TVÆR ÍBÚÐIR EFTIR* *STÓRAR SVALIR OG SÉR ÞAKSVALIIR* *GÖNGUFÆRI Á STRÖND* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG Á ÞAKI* *LÍKAMSRÆKT OG SAUNA*


Ný 4ra herb. penthouse íbúð á frábærum stað, í miðborg Torrevieja. Glæsileg íbúð með vandaðri sameign. Sérlega vel staðsett eign þar sem strönd og mannlíf eru í göngufæri. Eign í algjörum sérflokki á þessum stað.

Allar upplýsingar gefa:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is Sími 0034 615 112 869
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. Sími 893 2495. adalheidur@spanareignir.is,  


Nánari lýsing:
Gott alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengi á 60 fm hornsvalir. Þrjú svefnherbergi með fataskápum. Tvö baðherbergi, þar af eitt þeirra inn af hjónaherbergi. Gólfhiti í baðherbergjum. Eigninni fylgja 60 fm svalir og 68 fm þaksvalir með sturtu og útigrilli.

Góð sameign með sameiginlegri sundlaug og gufu á þaki og líkamsrækt á jarðhæð. 

Byggingin er vel staðsett í hjarta Torrevieja, með alla þjónustu, verslanir, matarmarkaði og veitingastaði rétt við þröskuldinn. Stutt göngufæri á ströndina og promenaði meðfram ströndinni, götumarkaður sem er opinn allt árið og margt fleira skemmtilegt. 

Verð: 440.000 evrur eða 63.800.000 ISK miðað við gengi 1EUR=145ISK) + kostn. við kaupin

Hægt er að kaupa aukalega stæði í bílakjallara. Verð 20.000 evrur.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Eiginleikar: ný eign, svalir, air con, sameiginleg sundlaug, einkasundlaug, þakverönd, strönd, miðbær, sauna, líkamsrækt,
Svæði: Costa Blanca, Torrevieja,

Kort af svæðinu