Spánareignir - La Zenia SPÁNN

69.600.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    176 m2

Tilvísunarnúmer:

877112

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝ EINBÝLISHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* – *FRÁBÆRT VERÐ* - *STUTT Á STRÖNDINA OG Í LA ZENIA BOULEVARD*

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869

EINSTÖK STAÐSETNING - FRÁBÆR HÖNNUN
Góð einbýlishús á tveimur hæðum ásamt þakverönd og einkasundlaug á hinu vinsæla La Zenia svæði, um 50 mín akstur suður frá Alicante flugvelli. Húsin eru vel skipulögð með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum.

Nánari lýsing:
Neðri hæð.
Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa vel tengt eldhúsi. Góð verönd  framan við húsið og lokaður garður með einkasundlaug.  Góðar þaksvalir með frábæru útsýni.

Efri hæð:
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi út á svalir og upp á þaksvalir.

Möguleiki er að breyta húsinu og hafa fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi ef fólk vill.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Las Colinas.
Göngufæri er niður á ströndina í La Zenia og Cabo Roig. Einnig er La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í þægilegu göngufæri.
Um 50 mín. akstursleið frá flugvellinum í Alicante.
Göngufæri í gott úrval veitingastaða og verslana.

Hér er um að ræða mjög góðar eignir á góðu verði á hinu vinsæla La Zenia svæði.
Svona gullmolar koma sjaldan í sölu og stoppa stutt.
Einstakt tækifæri fyrir fólk sem kann og vill njóta lífsins í fallegu umhverfi.

Verð frá 480.000 Evrum (ISK69.600.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Gengi 1Evra=145ISK.

Aðeins er um 20 hús að ræða, og þau eru að seljast hratt.
Hægt er að festa hús með því að greiða 6.000 evrur staðfestingargjald.  Sveigjanleg greiðslukjör eftir það. 
Afhending í mars-apríl 2026.

Húsið er 121fm
Þakverönd 54fm
Samtals 176fm

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug,  þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,

 

Kort af svæðinu