Spánareignir - Dehesa De Campoamor SPÁNN

144.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    4

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    157 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

876456

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG  EINBÝLISHÚS* - FRÁBÆR STAÐSETNING.*

Glæsileg einbýlishús í nútímalegum stíl, á tveimur hæðum  og með stórum þaksvölum. Lokaður garður,  einkasundlaug, flott grillaðstaða. Frábær staðsetning og stutt göngufæri í góða veitingastaði verslanir og þjónustu. Göngufæri á fallegu ströndina í Dehesa de Campoamor. Um 40 mín akstur suður af Alicante. Þrjú eða fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi + gestasnyrting. Stór stofa, rúmgóð borðstofa, í góðri tengingu við stórt eldhús með glæsilegri nútímalegri innréttingu og öllum þægindum. Gott aðgengi út í garðinn frá stofu með góðu útsýni yfir sundlaugina og sundlaugarsvæðið.  Frábær sólbaðsaðstaða. Svalir og stór þakverönd. Frábært fjölskylduhús. Gott útsýni. Möguleiki á að bæta við kjallara.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is. GSM 00354 893 2495, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869.
 

Húsin eru 157 fm., vel skipulögð og rúmgóð.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas ofl. Stutt í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina.

Gott úrval verslana og veitingastaða er í göngufæri. Einnig heilsugæsla og apotek.

Hér er um að ræða rúmgóðar lúxuseignir fyrir fólk sem gerir kröfur og kann að njóta lífsins.

Verð frá 995.000 Evrum ( 144.200.000,- ISK, gengi 1Evra=145 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. 
Húsin eru tilbúin til afhendingar ca. 20 mánuðum eftir að gengið er frá kaupum.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á hagstæðum kjörum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, sér garður, einkasundlaug, air con, BBQ,  strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, Dehesa de Campoamor, Cabo Roig,

Kort af svæðinu