Spánareignir - Villamartin SPÁNN

36.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Raðhús / Raðhús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    124 m2

Tilvísunarnúmer:

850380

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *SKEMMTILEGT ENDURNÝJAÐ FJÖLSKYLDUHÚS MEÐ SÓLRÍKUM 90 FM GARÐI OG EINKASUNDLAUG* *32FM ÞAKSVALIR* *FRÁBÆR FJÁRFESTING, LEYFI TIL ÚTLEIGU TIL STAÐAR* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR, VEITINGASTAÐI OG GOLF*

Eignin er vel skipulögð á stórri endalóð sem snýr í suðvestur. 3 svefnherbergi, baðherbergi og gestasnyrting. Eldhús og stofa í opnu rými. Garðurinn er sólríkur, 90 fm og með einkasundlaug. Einnig eru 32fm þaksvalir. Eignin er með loftkælingu/hitun og afhendist fullbúin húsgögnum. Eignin er með öryggiskerfi og hefur leyfi til útleigu. Eigninni fylgir einnig aðgangur að stórum sameiginlegum sundlaugargarði. Villamartin golfvöllurinn er einungis í 1 km fjarlægð. 

Lóðin er 150 fm. Svalir 8 fm, þaksvalir 32 fm og eignin er 75 fm.

Rólegt hverfi og gróið umhverfi, sundlaugin einungis nokkrum skrefum frá eigninni.
Hér er hægt að gera góð kaup í þessari eign á eftirsóttum stað í Villamartin.

Allar upplýsingar veitir:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is , sími 0034 615 112 869


Ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í verslanir, veitingastaði og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá. Í göngufæri við minigolf og padel velli. Ca. 5 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig. Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Verð 249.900 evrur eða 36.200.000 ISK (gengi 145)

Eignin er tilbúin til afhendingar
Við aðstoðum við fjármögnun fyrir allt að 75% af kaupverði eignar á góðum kjörum frá spænskum bönkum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: einkasundlaug, útleiga, endalóð, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, þaksvalir, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, La Zenia,
 

Kort af svæðinu