Spánareignir - Cabo Roig SPÁNN

348.000.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    0

  • Fjöldi svefnherbergja

    0

  • Fermetrastærð

    668 m2

Tilvísunarnúmer:

841489

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *VILLA Á CABO ROIG STRÖNDINNI* *FYRSTA LÍNA VIÐ STRÖND, EKKERT NEMA SJÓR OG SANDUR FYRIR FRAMAN* *EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ BYGGJA DRAUMAHÚSIÐ ÞITT Á COSTA BLANCA STRÖNDINNI*

Húsið er skráð 668 fm og stendur á 1.360 fm lóð. Staðsetningin er algjörlega einstök, í fyrstu línu á Cabo Roig ströndinni. Húsið stendur talsvert hærra en ströndin og er því algjört næði frá umferð, og gangandi vegfarendum á ströndinni. Sjávarútsýnið er stórkostlegt, og lóð á þessum stað er algjörlega einstakt tækifæri að fá keypta. 
Eignin sjálf er tilbúin til endurbóta, og afhendist í núverandi ástandi. Einnig er möguleiki á að rífa húsið og byggja nýtt hús á lóðinni. 
Þetta er eign í algjörum sérflokki. 

Nánari upplýsingar veitir Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, í síma 0034 615112869 eða berta@spanareignir.is

Eignin er frábærlega staðsett á Cabo Roig ströndinni, í göngufæri við verslanir, veitingastaði og strönd. 
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: sjávarútsýni, strönd, stór lóð, einkasundlaug, svalir, sér garður,  
Svæði: Costa Blanca, Cabo Roig,

 

Kort af svæðinu