Spánareignir - El Raso SPÁNN

35.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    78 m2

Tilvísunarnúmer:

704463

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR - SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*

Stórglæsilegar og vel hannaðar  glænýjar 3ja herb. íbúðir í El Raso, frábærum litlum bæ á Guardamar svæðinu, um 30 mín akstur suður af Alicante.  Tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa og eldhús opið við borðstofu.  Fallegar innréttingar.
Hægt er að velja um íbúð á jarðhæð með sérgarði, miðhæðum með góðum svölum eða efstu hæð með  sér þaksvölum.
Sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri aðstöðu, grænu svæði, leiksvæði fyrir börnin, minigolf, líkamsræktarstöð og SPA.
Einkabílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.
ÍBÚÐIRNAR AFHENDAST FULLBÚNAR TÆKJUM Í ELDHÚSI, UPPÞVOTTAVÉL OG ÞVOTTAVÉL OG AUK ÞESS AIR CON.
Rafmagnsgardínur og lýsing fylgir öllum íbúðum.
FRÁBÆR KAUP.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected].


Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 5-10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verslanir, veitingastaðir og þjónusta á jarðhæð, og auk þess enn meira úrval í stuttu göngufæri. Örstutt á vinsæla sítrónumarkaðinn á sunnudögum.

Þessar íbúðir eru að fara hratt enda frábært verð og staðsetning.

Verð miðað við gengi 1evra=150ISK:
Íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 239.000 Evrum (ISK. 35.800.000)

Á sama stað er líka hægt að velja íbúðir með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Verð frá 293.000 Evrum (ISK. 43.900.000)

Til afhendingar í júlí 2024-nóv.2025.
Ofan á öll verð leggst 10% skattur og ca 3% kostn. vegna stimpilgjalda ofl., þannig að samtals kostn. vegna kaupanna er ca. 13%.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, bílastæði, air con, sér garður, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, El Raso,

Kort af svæðinu