Spánareignir - La Finca Golf SPÁNN

32.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með sérinngangi

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    70 m2

Tilvísunarnúmer:

691362

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ VIÐ LA FINCA GOLFVÖLLINN*

Vel staðsettar og fallegar, vel skipulagðar nýjar 3ja herb. efri eða neðri sér hæðir á einni hæð á frábærum stað í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll og 1. teig.  Íbúðum á neðri hæð fylgir sér garður, íbúðum á efri hæð fylgja sér þaksvalir.  Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsilegar íbúðir með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Komið er inn í gott alrými og skiptist það í gott eldhús og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Útgengi út á svalir með útgengi út í sér garð í íbúðum á neðri hæð, en upp á rúmgóðar þaksvalir í íbúðum á efri hæð.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og stórum fataskáp. Auk þess annað svefnherbergi og annað baðherbergi.
Sérlega vel staðsettar og fallegar íbúðir.

Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir verður opnað á næstu mánuðum. Stutt í verslunar og þjónustukjarna á La Finca, og svo einnig í skemmtilega litla spænska bæði eins og Ciudad Quesada og Algorfa. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. 

Frábærar íbúðir á góðu verði fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrstu áfangar UPPSELDIR. NÝR ÁFANGI kominn í sölu. 

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK):
Neðri hæð með sér garði
3ja herb. íbúð, neðri hæð með verönd og sér garði:  Verð frá 219.000 Evrum  (32.800.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin. 
3ja herb. íbúð, efri hæð með svölum og sér þaksvölum:  Verð frá 232.000 Evrum (34.800.000 ISK) + 10% skattur og ca. ca. 3% kostn. við kaupin. 

Íbúðin er 70 fm.
svalir/verönd 13-22 fm.
Þakverönd 31-61 fm.

Frábær leið til að festa sér góða íbúð á flottum stað.

Á sama stað eru líka í boði glæsileg parhús, raðhús og einbýlishús.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka til að auðvelda kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, þakverönd, sundlaugargarður, air con, golf, útsýni, 
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

Kort af svæðinu