Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

68.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    182 m2

Tilvísunarnúmer:

690379

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á VINSÆLUM GOLFVELLI*

Glæsilegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á Las Colinas golfsvæðinu með góðu útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóðar íbúðir,  3-4 svefnherbergi, 2-3 baðherbergi og gestasnyrting með flestum íbúðum. Góð stofa,opið eldhús með vandaðri innréttingu. Stór verönd og sér garður fylgir íbúðum á jarðhæð. 1-2 sér bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Lýsing:

Stórar svalir út frá stofu. Íbúðum á neðstu hæð fylgir sér garður. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Gott útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar úr flestum íbúðum.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.


Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flottar eignir á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf, stunda útiveru og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði og miðhæðum með stórum svölum og glæsilegar penthouse íbúðir með stórum svölum.
Íbúðirnar eru 97-173 fm. og þeim fylgja stórar verandir og ser sérafnotaflötur íbúða 131-426 fm.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
Íbúð með 2 svefnh. + 2 baðh. + gestasnyrtingu, verð frá 425.000 evrur (63.700.000ISK) + kostn.við kaupin.
Íbúð með 3 svefnh.+ 2 baðh., verð frá 459.000 evrur (68.800.000ISK) + kostn. við kaupin.
Íbúð 118 fm. + sér verönd 44 fm. + garður 20 fm. Samtals 182 sérafnotafm. Auk þess sér stæði í bílakjallara og geymsla.

Penthouse íbúðir - UPPSELDAR

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu