Spánareignir - Los Alcazares SPÁNN

58.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    122 m2

Tilvísunarnúmer:

689351

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ " - "GÖNGUFÆRI VIÐ GOLF, STRÖND OG SKEMMTILEGAN SPÆNSKAN BÆ"

Vönduð og  falleg einbýlishús á EINNI HÆÐ rétt við La Serena golfvöllinn í Los Alcazares. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Göngufæri á fallega strönd og gamla bæinn í Los Alcazares, þar sem svo sannarlega er sál og sjarmi, bátahöfn og skemmtilegt "promenaðe" meðfram ströndinni. Einnig eru fleiri golfvellir í nágrenninu, t.d. Roda Golf, Mar Menor golfvöllurinn, Las Colinas, Las Ramblas, Villamartin og fleiri. Um 60 mín akstur til Alicante, og ca. 10 mín. akstur til Cartagena, skemmtilega spænska borg.  Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri.

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.


Rúmgóð og falleg hús á góðu verði.

Stofa og borðstofa í opnu rými vel tengt eldhúsi. Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Útgengi á góða  verönd og einkagarði með sundlaug. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.

Möguleiki er að bæta við þakverönd gegn aukagjaldi.

VERÐ, miðað við gengi 1EVRA=150ISK.
Frá 389.000 evrum (ISK 58.300.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Húsin verða afhent í des. 2024 - mars 2025.

Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á frábærum stað.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Los Alcázares  er mjög vinsæll sumarleyfisbær og þar er góð aðstaða til stunda sjóíþróttir. Einnig er í boði fjölbreytt afþreying og ýmsar skemmtilegar uppákomur allt árið um kring. Gott aðgengi að allri nauðsynlegri þjónustu, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fjölbreytt úrval af góðum veitingastöðum og tapasbörum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca/Costa Calida, Mar Menor, Los Alcazares,

Kort af svæðinu