Spánareignir - Villamartin SPÁNN

36.900.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    133 m2

Tilvísunarnúmer:

685619

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*DRAUMAEIGN GOLFARANS*-*SKOÐAÐU STAÐSETNINGUNA"

Glænýjar og vandaðar 3ja  herb.  íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi á Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann og Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Göngufæri í vinsæla veitingahúsakjarnann í La Fuente og stutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. Göngufæri í Mercadona og Aldi og einnig er HAWKS Fitnes líkamsræktarstöðin  örstuttu göngufæri. El Limonar, einn besti alþjóðlegi einkaskólinn á Spáni, er örstutt frá.

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.


Flottur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri aðstöðu.
Allar íbúðirnar eru með stórar suðursvalir. Íbúðir á jarðhæð eru einnig með sér suðurgarð, og íbúðir á efstu hæð með stórum sér þaksvölum.
Tilbúnar til afhendingar í ágúst 2024.
Einstakt tækifæri til að eignast góða íbúð á fínu verði.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar fallegum húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi, þannig að hægt er að mæta bara á staðinn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

Sér stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum og auk þess geymsla við bílastæðið. Frábært að setja golfsettin beint í geymsluna eftir golfhring.

Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.
 
Verð miðað við gengi 1 Evra=150ISK:
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum  246.000 evrum ( ISK. 36.900.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, eða samtals 13%.

Í HÚSINU ERU SAMTALS 20 ÍBÚÐIR, EN AÐEINS TVÆR ÍBÚÐIR EFTIR.
BÁÐAR Á JARÐHÆÐ 82 FM. AUK  57 FM. SÉR VERÖND Á MÓTI SUÐRI.
AÐGENGI AÐ FALLEGUM SAMEIGINLEGUM SUNDLAUGARGARÐI.


Íbúð 82 fm.
Verönd 57 fm.
Samtals 139 sérafnotafm.

Kaupverðið er greitt í áföngum, og ekki þarf að ganga frá lokagreiðslu fyrr en íbúðin er afhent tilbúin.
Íbúðin er 82 fm., sér svalir til suðurs 51 fm.
Samtals 133 fm. sérafnotarými.

Íbúðirnar eru með 2 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum, en möguleiki er að hafa stofuna minni og bæta við þriðja svefnherberginu.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, útsýni, bílakjallari, svalir, bílakjallari, golf, sameiginlegur sundlaugargarður,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, Filipinas,

Kort af svæðinu