Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

65.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    126 m2

Tilvísunarnúmer:

685059

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*


Sérlega glæsilegar og vel hannaðar íbúðir í tveimur litlum lúxusblokkum á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni yfir fallega gróið svæði.  Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóðar íbúðir,  tvö svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar  svalir. Bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Íbúðum á jarðhæð fylgir sér garður, íbúðum á efstu hæð fylgja stórar einka þaksvalir.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Lýsing
:
Rúmgóðar og glæsilegar íbúðir, stórar svalir út frá stofu. Tvö eða þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Bílastæði í bílakjallara fylgja ásamt sér geymslu.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar. Þeir sem eiga eignir á Las Colinas geta fengið sér kjör á golfvöllinn og aðgang að einkastrandklúbb við Dehesa de Campoamor ströndina. Algjör lúxus.

ÞESSAR ÍBÚÐIR ERU Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI.
Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK
Jarðhæðir með sér garði
2 svefnh. + 2 baðh. 
Verð frá: 435.000 evrur  (ISK 65.200.000) + kostn. við kaupin.
Íbúð 102fm
verönd 24fm
Samtals sérafnotaflötur 126fm.
Sérgarður 130-310 fm.
Auk þess glæsileg aðstaða í sameiginlegum sundlaugargarði.

Miðhæðir,UPPSELDAR.

Penthouse með einkaþaksvölum, UPPSELDAR.


Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti á baðherbergjum.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚÐIR Í BOÐI.
MIKIL EFTIRSPURN ER EFTIR ÍBÚÐUM Á LAS COLINAS OG ÞVÍ ER HÉR EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ TRYGGJA SÉR GÓÐA ÍBÚÐ Á ÞESSUM VINSÆLA STAÐ.
FYRSTUR KEMUR FYRSTUR FÆR.


Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, stórar svalir, þaksvalir.
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu