SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGT EINBÝLISHÚS Á FRÁBÆRUM STAÐ*
Stórglæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum. Glæsilegt útsýni. 3 svefnherbergi og 3 baðherbergi. Stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Sérgarður með sérsundlaug og góðri grill aðstöðu. Tilbúið til afhendingar strax.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Frábær staðsetning í göngufæri frá ótal verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir golfvellir í næsta nágrenni. Stutt á fallega strönd.Um 50 mín akstur frá flugvellinum í Alicante.
Nánari lýsing:
Einbýlishúsið er sérlega vel hannað og falleg. Á neðri hæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa vel tengd eldhúsi með vandaðri og fallegri innréttingu. Úr stofu er útgengi út á góða verönd sem er vel tengd sér garði með einkasundlaug og góðri grillaðstöðu. Tvö svefnherbergi með skápum og tvö baðherbergi.
Gengið er upp stiga og á efri hæðinni er rúmgott svefnherbergi og sérbaðherbergi. Svalir út frá svefnherbergjum með einstöku útsýni til sjávar.
Bílastæði inni á lóð fylgir.
Hér er um að ræða fallegt einbýlishús á frábærum og fjölskylduvænum stað.
Einstaklega vel staðsett á Costa Blanca ströndinni.
Stutt er á ströndina, þar sem eru ótal skemmtilegir veitingastaðir, falleg sandströnd, skemmtilegt strandlíf og göngustígar meðfram allri ströndinni.
Stutt í vinsælu verslunar- og afþreyingarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Þar eru ótal vinsælar verslanir, t.d. H&M, Zara, Primark ofl. Einnig fjölmargir góðir veitingastaðir og kaffihús. Stórt torg þar sem hægt er að horfa á íþróttaviðburði á stórum sjónvarpsskjá, baða sig í gosbrunnum, læra að dansa og hlusta á tónlist.
Einnig er örstutt göngufæri í Lomas de Cabo Roig þjónustukjarnann, sem nýlega var opnaður og býður upp á góða veitingastaði, verslanir og þjónustu.
Húsin eru í byggingu og hægt að velja innréttingar og lokafrágang.
Verð frá 785.000 Evrum + kostn. eða ISK. 113.800.000,- (gengi 1Evra=145 ISK.)
Innifalið í verði er fullbúið eldhús með rafmagnstækjum, aircon og lýsing.
Hægt að fá húsið afhent fullbúið húsgögnum gegn aukagjaldi.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.
Eiginleikar: bílastæði, einkasundlaug, þakverönd, sér garður, air con,
Svæði: Costa Blanca, Cabo Roig,