SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTTAR ÍBÚÐIR Á VINSÆLUM GOLFVELLI*
Glæsilegar og vel hannaðar nýjar íbúðir á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóðar íbúðir, þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa,opið eldhús með vandaðri innréttingu. Stórar svalir með frábæru útsýni. Sér bílastæði.
Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]
Lýsing:Stórar svalir út frá stofu. Íbúðum á neðstu hæð fylgir sér garður. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta.
Loftkæling/hitun fylgir.
Auk þess rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.
Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð með sér garði og miðhæðum með stórum svölum.
Allar penthouse íbúðir uppseldar.
Íbúð með 3 svefn. + 3 baðh. Verð frá 584.000 evrur + kostn. (85.800.000ISK + kostn. miðað við gengi 1Evra=147ISK)
Aðeins örfáar íbúðir í boði.
Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,