SPÁNAREIGNIR KYNNIR Í SÖLU Í LA ZENIA:
*RÚMGÓÐAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ* *SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*
Glænýjar og vandaðar 3ja eða 4ra herb. íbúðir á frábærum stað í La Zenia, örstutt göngufæri frá La Zenia Boulevard og þægilegur göngutúr á ströndina. Góðir golfvellir á svæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Göngufæri í fjölmargar verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast nýja og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.Nánari lýsing:
Um er að ræða nýbyggð lyftuhús með 3ja og 4ra herb. vel hönnuðum samtals 40 íbúðum. Íbúðirnar eru með tveimur eða þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með stórri sér verönd, miðhæðum með svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og einka þaksvölum. Góð sameign með sundlaug,
Frábær staðsetning, stutt á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í næsta nágrenni og örstutt göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina.
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Frábærar íbúðir til útleigu.
Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK.
3ja herbergja íbúð, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Verð frá 235.000 Evrum (ISK 34.000.000, gengi, 1Evra/145 ISK) + kostnaður við kaupin, ca. 13%4ra herbergja íbúð UPPSELDAR í bili, nýjar íbúðir væntanlegar í nýjum áfanga.
Hægt er að fá þær afhentar fullbúnar húsgögnum og húsbúnaði gegn aukagjaldi.Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar u m fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isSKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con,
Svæði: Costa Blanca, La Zenia,