SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
NÝR ÁFANGI VAR AÐ KOMA Í SÖLU *EINBÝLISHÚS – GLÆSILEGT RESORT*
Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm., Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum. Nú var verið að setja nýjan áfanga í sölu, og því enn hægt að velja góðar eignir í þeim áfanga. Fólk er að tryggja sér þessar eignir á meðan þær eru ennþá á góðum verðum.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi. Stór verönd, sér garður með einkasundlaug. Þaksvalir og góðar svalir út frá svefnherbergjum á efri hæð. Bílastæði. Kjallari fylgir, og er hægt að láta innrétta hann á ýmsa vegu, td. með aukasvefnherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými.
Jarðhæð: Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými og útgengi út á veröndina sem er með góðu aðgengi að einkagarði. Gott svefnherbergi og baðherbergi.
Hægt er að velja Premium hús og þá er auka gestasnyrting á jarðhæð.
Efri hæð: Stór hjónasvíta með sér baðherbergi og útgengi út á góðar svalir. Eitt svefnherbergi til viðbótar með sér baðherbergi.
Kjallari: Rúmgott opið rými sem hægt er að láta innrétta að eigin vali.
Sérlega metnaðarfull hönnun þar sem tekið er tillit til umhverfis og náttúru. Svæðið er gróið og fallegt og auk þess verður eitt tré gróðursett fyrir hvern viðskiptavin.
Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.
Hægt er að fá húsin fullbúið húsgögnum gegn aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.
Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.
Verð miðað við gengi 1Evra=143ISK.
3 svefnh. + 3 baðh. + kjallari + þakverönd, samtals 226 fm. verð frá 410.000 Evrum (58.600.000 ISK) + kostn. við kaupin.
Jarðhæð + efri hæð 114 fm., kjallari 66 fm. og solarium 46 fm. Samtals 226 fm.
Premium hús, 3 svefnh. + 3 baðh. + gestasnyrting + kjallari, samtals 240 fm. verð frá 461.000 Evrum (65.900.000 ISK) + kostn. við kaupin.
Jarðhæð + efri hæð 121 fm., kjallari 73 fm. og solarium 46 fm. Samtals 240 fm.
Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld. Að meðaltali eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
http://www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, þakverönd, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,