SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG RAÐHÚS*- * ÞAKVERÖND OG SÉRGARÐUR MEÐ EINKASUNDLAUG*
Glæsileg ný raðhús á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Sérgarður með einkasundlaug. Þakverönd. Húsin eru í ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 10 mín. akstur í La Zenia Boulevard verslanamiðstöðina. Ca. 10 mín. akstur á hinn vinsæla götumarkað í Playa Flamenca á laugardögum. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.
Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.
Nánari lýsing:Um er að ræða vel skipulagðar 4ra herb. eignir á tveimur hæðum. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi. Einnig er svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæð eru tvö góð svefnherbergi og gott baðherbergi. Útgengi er út á svalir.
Frá efri hæð er gengið upp á góðar þaksvalir með frábæru útsýni.
Góður lokaður sér garður framan við húsið með einkasundlaug.
Hægt er að velja hús með suðurgarði og garði sem snýr í norður.
Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast góða nýja eign á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Verð: frá 294.000 Evrur. (ISK. 42.600.000 gengi 1Evra/145ISK) + kostnaður við kaupin.
Fyrsti áfangi er tilbúinn til afhendingar í mái 2024.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar
:www.spanareignir.isKostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.
Eiginleikar: ný eign, þakverönd, sér garður, einkasundlaug, air con,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,