Spánareignir - Ciudad Quesada SPÁNN

77.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    109 m2

Tilvísunarnúmer:

694774

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS - FRÁBÆR STAÐSETNING* – *TIL AFHENDINGAR STRAX*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með stórum lokuðum garði og einkasundlaug í Ciudad Quesada, fallegum spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú til fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og vel hannað eldhús. Möguleiki á húsum með rými í kjallara sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, vinnuaðstöðu, sjónvarpsherbergi og/eða gestaherbergi. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug. 
Flott þakverönd með tengi fyrir útieldihúsi og heitum potti.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Stórar þaksvalir með flottu útsýni og tengi fyrir útieldhúsi og heitum potti.

Möguleiki á að velja hús með kjallara þar sem er stórt opið rými sem hægt er að nýta sem tómstundarherbergi, sjónvarpsstofu, vinnurými og gestaaðstöðu. Baðherbergi og þvottahús.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 

Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garður með einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Verslanir og veitingastaðir í göngufæri.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Ciudad Quesada er skemmtilegur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi bæjarlífi,  Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. 

Verð frá 514.900 evrum  + kostn. (ISK 77.200.000 + kostn. miðað við gengi 1Evra=150 ISK.)
AÐEINS TVÖ HÚS EFTIR - TIL AFHENDINGAR STRAX

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, air con, einkasundlaug, kjallari,
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada,

Kort af svæðinu