Spánareignir - La Finca Golf SPÁNN

82.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    190 m2

Tilvísunarnúmer:

694491

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR GOLFVILLUR Á LA FINCA GOLFVELLINUM*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á einni hæð í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. Mikil lofthæð í alrými gefur glæsilegt yfirbragð. Stór sér lóð með einkasundlaug. Bílastæði inni á lokaðri lóð.


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými með mikilli lofthæð sem gefur glæsilegt yfirbragð. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar á sérgangi og þar er annað baðherbergi. Gólfhiti á baðherbergjum.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.
Fallegt umhverfi.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem gæðaveitingastaðir, vínsmökkun og verslanir verður opnað á næstu mánuðum. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Verð frá 552.000 Evrur. (82.800.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)
Húsið er 134 fm.
Verönd 56 fm.
Samtals 190 fm.

Húsin eru tilbúin til afhendingar í júní 2024.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, golf
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

Kort af svæðinu