Spánareignir - Villamartin SPÁNN

31.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    73 m2

Tilvísunarnúmer:

693791

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*DRAUMAEIGN GOLFARANS* - *GOTT VERÐ*

Glænýjar og vandaðar 3ja herb.  íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi á Villamartin golfparadísarsvæðinu, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. Stutt í La Fuente verslunar og veitingahúsakjarnann, Mercadona matvöruverslunina og í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina. Örstutt á frábæra golfvelli, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas og ótal fleiri. El Limonar, einn besti alþjóðlega einkaskólinn á svæðinu er örstutt frá.
SÍÐASTA BLOKKIN VAR AÐ KOMA Í SÖLU. SÉRSTAKT TILBOÐ: HÚSGÖGN OG ELDHÚSTÆKI FYLGJA MEÐ.

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.


Flottur sameiginlegur sundlaugargarður.

Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Stórar svalir með öllum íbúðunum, 

Hægt er að velja íbúð á jarðhæð með stórum sérgarði og einkasundlaug.
Í hönnun og frágangi er áhersla lögð á góða sameiginlega aðstöðu, í lokuðum sundlaugargarði. Góð leikaðstaða fyrir börnin.

Sérmerkt bílastæði inni á lokaðri lóð fylgja öllum íbúðum.

Ca. 10 mínútna akstur niður á fallegar strendur La Zenia og Cabo Roig.

VERÐ miðað við gengi 1Evra=150 ISK):
3ja herb. íbúð, með tveimur svefnh. og tveimur baðh., verð frá 212.000 evrum ( ISK 31.800.000) + kostn. 
3ja herb. íbúð á jarðhæð, með stórum sérgarði og möguleika á einkasundlaug, verð frá 226.000 evrum  ( ISK 33.900.000) + kostn.

Til afhendingar strax.
Mjög þægileg greiðslukjör, aðeins þarf að greiða 10.000 evrur í staðfestingargjald, og síðan ekkert meira fyrr en við afhendingu.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar húsgögnum, rafmagnstækjum (White Goods) og lýsingu, og er það innifalið í verðinu.
Við aðstoðum við fjármögnun fyrir allt að 70% af kaupverði eignar á góðum kjörum frá spænskum bönkum.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður. 

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, einkasundlaug, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

Kort af svæðinu