Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

239.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    5

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    448 m2

Tilvísunarnúmer:

693498

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG PENTHOUSEÍBÚÐ Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI Á LAS COLINAS GOLFVELLINUM*

Sérlega glæsileg og vel hönnuð ný penthouseíbúð á Las Colinas golfsvæðinu með einstöku útsýni  yfir golfvöllinn og til sjávar. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Rúmgóð íbúð,  þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, tvær gestasnyrtingar, góð stofa, opið eldhús með vandaðri innréttingu og góðri tengingu við stórar  svalir með frábæru útsýni og auk þess stór einkaþakverönd með einkasundlaug, gestasnyrtingu og matarlyftu niður í eldhúsið. Tvö sér bílastæði i bílakjallara ásamt sér geymslu. Möguleiki á að kaupa þriðja bílastæðið. Sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Lýsing:

Stór og glæsileg íbúð (179 fm), stórar (79 fm) svalir út frá stofu. Stór (164 fm) einkaþakverönd með 26 fm einkasundlaug, samtals er um að ræða 448 fm. sérafnotarými. Á þakveröndinni er gestasnyrting og matarlyfta sem liggur niður í eldhúsið, þannig að ekki þarf að bera mat og drykki á milli hæða. Sér víngeymsla. þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, tvær gestasnyrtingar, önnur innan íbúðar og hin á þakveröndinni. Stór stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými með góðri tengingu við stórar svalir. Glæsilegur fallegur sameiginlegur sundlaugargarði með góðri sólbaðsaðstöðu. Líkamsrækt. Tvö bílastæði í bílakjallara fylgja ásamt sér geymslu og möguleiki er að kaupa þriðja bílastæðið.  Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Frábært útsýni yfir fallega gróið umhverfi, golfvöllinn og til sjávar.

ÞESSI ÍBÚÐ ER Í ALGJÖRUM SÉRFLOKKI OG ÁN NOKKURS VAFA EIN GLÆSILEGASTA PENTHOUSE ÍBÚÐIN Á ÖLLU COSTA BLANCA SVÆÐINU.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum.  Á svæðinu er glæsileg þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. 

Loftkæling/hitun fylgir og auk þess er gólfhiti á baðherbergjum.
rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél fylgja.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu
og vinum.

UM ER AÐ RÆÐA ENDAÍBÚÐ, OG AÐEINS EINA SVONA ÍBÚÐ.
Íbúð með 3 svefn. + 3 baðh. og 2 gestasnyrtingum:
Verð 1.595.000 evrur + kostn. (239.200.000ISK + kostn. miðað við gengi 1Evra=150ISK)

Í sama húsi eru í boði minni íbúðir, með 2 eða 3 svefnherbergi á verðum frá 389.000 Evrum + kostnaði (58.300.000 ISK + kostn. miðað við gengi 1 E=150ISK)
Áætlaður afhendingartími er í mars 2024, en gæti orðið fyrr vegna mikils áhuga fyrir íbúðum í þessu húsi.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum gegn aukagjaldi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca.3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign, einkasundlaug á þakverönd,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu