Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

165.000.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    176 m2

Tilvísunarnúmer:

693486

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI

Glæsileg og vel hönnuð ný  einbýlishús á einni hæð. Örstutt göngufæri í glæsilegt klúbbhúsið á Las Colinas golfvellinum, æfingasvæðið og fyrsta teig. Stór einkagarður með einkasundlaug.  Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Frábær staðsetning alveg við golfvöllinn. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Las Colinas svæðinu verður best lýst með orðunum "A World Apart"

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, GSM 777 4277. [email protected]


GOTT SKIPULAG,  rúmgóð svefnherbergis svíta með sérbaðherbergi og fataherbergi og auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar, baðherbergi og gestasnyrting. Rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við borðstofu, allt á einni hæð. Góð verönd  framan við húsið og  stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir.  

Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Glæsileg líkamsræktarstöð og sundlaugargarður er inni á svæðinu. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Gott bílastæði við húsið. 
Örstutt göngufæri í Las Colinas klúbbhúsið, þar sem eru glæsilegir veitingastaðir og fallegt umhverfi.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca,  Las Ramblas, Campoamor og Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum í fallegu umhverfi.

Verð, gengi 1 Evra=150ISK.
1.100.000 evrur  + kostn. (165.000.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn við kaupin.
AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI, TIL AFHENDINGAR STRAX.
EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á LAS COLINAS GOLF SVÆÐINU


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, BBQ,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu