Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

262.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    4

  • Fjöldi svefnherbergja

    4

  • Fermetrastærð

    225 m2

Tilvísunarnúmer:

693485

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á BESTA STAÐ Á LAS COLINAS GOLFVELLINUMt*

Glæsilegt og vel hannað nýtt  einbýlishús á tveimur hæðum. Stór garður með einkasundlaug. Húsið er á góðum stað í Mimosa hverfinu, einum besta stað á Las Colinas golfvellinum. Örstutt göngufæri í klúbbhúsið, æfingasvæðið og 1. teig. Gott útsýni, 
Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG,  fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, gestasnyrting, rúmgóð stofa, eldhús og borðstofa í björtu opnu rými með góðri tengingu við stóra verönd. Stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu. Þakverönd með flottu útsýni.
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10-15 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Aðal hæð: Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt opnu eldhúsi. Stór hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Gestasnyrting.

Neðri hæð.  Þrjú rúmgóð svefnherbergi, eitt með sér baðherbergi og auk þess þess annað baðherbergi. Rúmgott þvottahús/geymsla.
Útgengi út á verönd og garðinn frá öllum svefnherbergjum neðri hæðar.

Hér er um eitt glæsilegasta einbýlishúsið á Las Colinas að ræða og frábæra staðsetningu.
Húsið er í byggingu, og hægt að ráða ýmsu um val á innréttingum og lokafrágang.

Stæði fyrir tvo bíla inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero.
Ca. 10-15 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 1.750.000 evrur (262.500.000 ISK) + kostn.  gengi 1Evra=150 ISK

AÐEINS EITT HÚS Í BOÐI.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu