Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

175.400.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    162 m2

Tilvísunarnúmer:

693484

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
GLÆSILEG LÚXUSVILLA Á BESTA STAÐ Á FRÁBÆRUM GOLFVELLI

Glæsileg og vel hönnuð ný  einbýlishús á einni hæð í LIMA, nýju hverfi í örstuttu göngufæri frá klúbbhúsinu á Las Colinas golfvellinum, æfingasvæðinu og fyrsta teig. Stór einkagarður með einkasundlaug á móti suðri.  Frábær staðsetning alveg við golfvöllinn. Tennis- og boltavellir í næsta nágrenni og auk þess ráðgert að reisa þar lúxushótel, litla verslana- og þjónustu miðstöð og lítinn almenningsgarð þar sem hægt er að njóta útiveru. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
Las Colinas golfvallasvæðið hefur verið valið besta golfsvæðið á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er svæðinu best lýst með orðunum "A World Apart" eða heimur út af fyrir sig.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, GSM 777 4277. [email protected]


FRÁBÆRT SKIPULAG,  rúmgóð svefnherbergis svíta með sérbaðherbergi og fataherbergi og auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar,  baðherbergi og gestasnyrting. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Rúmgóð og björt stofa, eldhús opið við borðstofu, allt á einni hæð. Góð verönd  framan við húsið og  stór sér garður með einkasundlaug og sólbaðsaðstöðu fylgir.  Möguleiki er að fá hús með rúmgóðum kjallara fyrir bílskúr og tómstundir, vinnuaðstöðu, vínkjallara eða jafnvel líkamsrækt

Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir í grónu umhverfi og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.
Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa einnig aðgang að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni, ca. 10 mín í ca. 10 mín akstursfjarlægð.
Örstutt göngufæri í Las Colinas klúbbhúsið, þar sem eru glæsilegir veitingastaðir og fallegt umhverfi, líkamsræktarstöð ofl.
Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca,  Las Ramblas, Campoamor og Villamartin.
Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum í fallegu umhverfi.

Gengi 1 Evra=150ISK.
Verð frá 1.210.000 evrur  + kostn. (181.500.000ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn.við kaupin, samtals ca. 13%.
Einnig er möguleiki á að velja hús með bílakjallara undir, og verður húsið þá samtals 265 fm. Verð frá 1.385.000 evrur  (207.700.000 ISK ) + 10% skattur og ca. 3%kostn. við kaupin, samtals ca. 13%

EIN BESTA STAÐSETNINGIN Á LAS COLINAS GOLF SVÆÐINU

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Bein kaup frá  traustum og öruggum byggingaraðila.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum, ljósum og rafmagnstækjum gegn aukagjaldi.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is


Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: golf, sér garður, einkasundlaug, air con, bílastæði, BBQ,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu