Spánareignir - La Finca Golf SPÁNN

178.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    345 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

693482

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR GOLFVILLUR*-*FYRSTA LÍNA - FRÁBÆRT ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN*

Sérlega vönduð og falleg, vel skipulögð og rúmgóð og ný einbýlishús á einni hæð ásamt stórum kjallara í stuttu göngufæri frá klúbbhúsinu við hinn glæsilega La Finca golfvöll. Góð sér lóð með einkasundlaug og OG FRÁBÆRU ÚTSÝNI YFIR GOLFVÖLLINN. Um 30 mín akstur suður frá Alicante. Sérlega glæsileg hús með góðu alrými, þremur svefnherbergjum, fataherbergi og tveimur baðherbergjum. Stór sér lóð. Bílastæði inni á lokaðri lóð.
60 GOLFHRINGIR Á LA FINCA GOLFVELLINUM FYLGIR MEÐ Í VERÐINU.


Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]


Nánari lýsing:
Falleg aðkoma er að húsinu og skiptist það í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými. Rafmagnstæki fylgja í eldhúsi.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi. Auk þess tvö svefnherbergi til viðbótar  á sér gangi og þar er annað baðherbergi. 

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug. Einstakt útsýni yfir La Finca golfvöllinn og gróið og fallegt umhverfi.
Rúmgóður kjallari (197 fm) undir húsinu, sem býður upp á mikla möguleika, td. fyrir bílageymslu, bíósal, ýmsar tómstundir og vinnu aðstöðu. 
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. Speglar og sturtugler fylgir og auk þess home autamation kerfi.

Stærð húss: 148 fm
Stærð kjallara: 197 fm
Stærð veranda 142 fm
Þaksvalir 106 fm
Stærð lóðar 456-475 fm.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, í örstuttu göngufær við nýja og flotta klúbbhúsið á La Finca golfvellinum 5* golf og spa hótel og nýjan og glæsilegan þjónustukjarna þar sem er að finna gæðaveitingastaði, vínsmökkun og verslanir. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Vistabella, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina og ca. 20 mín akstur í vinsælu verslunarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa og Ciudad Quesada.

Lúxuseign fyrir kröfuharða golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.
Fyrsti áfangi uppseldur. Annar áfangi var að koma í sölu. Aðeins örfá hús í boði, tilbúin til afhendingar ca. 12-15 mánuðum eftir staðfestingu á kaupum.

Verð 1.190.000 Evrur. (178.500.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, bílskúr, útsýni, golf,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,

Kort af svæðinu