Spánareignir - Dona Pepa SPÁNN

49.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    0 m2

  • Bílskúr

    Með bílskúr

Tilvísunarnúmer:

692895

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT ÍBÚÐ MEÐ BÍLSKÚR Í LITLU FJÖLBÝLI*-*SELST FULLBÚIN VÖNDUÐUM HÚSGÖGNUM OG HÚSBÚNAÐI*

Glæsileg, vel skipulögð nýleg íbúð á neðri hæð með stórum sérgarði í vönduðu tveggja hæða litlu fjölbýlishúsi  á Dona Pepa svæðinu, um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Lokað svæði. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður. Sér bílskúr fylgir. Góð líkamsræktaraðstaða í sameign. HÆGT AÐ FÁ AFHENT STRAX. ALLT FYLGIR. FRÁBÆR KAUP.

Upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]


Skipulag:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Þrjú  svefnherbergi. Sér baðherbergi með einu svefnherberginu og auk þess annað baðherbergi.
Fulltengt innbyggt kerfi með loftkælingu og hitun fylgir.

Íbúðinni fylgir sér garður við húsið þar sem er gott pláss, t.d. til að grilla og  borða úti og njóta sólarinnar.

Glæsilegur sameiginlegur lokaður sundlaugagarður með góðri aðstöðu. 

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og ca. 10 mín akstur á La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Gott úrval verslana og veitingastaða er í göngufæri, auk þess er stutt í heilsugæslu, tennisvöll, fótboltavöll, crazy golf, SPA ofl.
Hér er um að ræða algjöra lúxuseign fyrir fólk sem kann að njóta lífsins. 

Verð 330.000,- Evrur + kostn. (ISK 49.500.000,- miðað við gengi 1E=150 ISK.)

Vönduð húsgögn og allur húsbúnaður fylgir með og er innifalið í verðinu, þannig að hægt er að flytja beint inn.
Svefnsófi er í stofunni, þannig að svefnpláss er fyrir allt að 8 manns.

Íbúðin er með leyfi til útleigu frá Comunitat Valenciana "Apartamento Turistico" og er því mjög hentug útleigueign.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.


Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við skipulag á skoðunarferðum. Hægt er að bóka gistingu í eigninni, og er gistingin endurgreidd ef af kaupum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Frábær staðsetning þar sem allt er innan seilingar:
• 5 mínútna göngufjarlægð í matvöruverslanirnar Aldi, Lidl, Consum og Masymas.
• 5 mínútna göngufjarlægð frá veitingastöðum, kaffihúsum og börum.
• 5 mínútna göngufjarlægð frá bar þar sem fótboltastemningin ræður ríkjum.
• 10 mínútna göngufjarlægð frá aðalverslunargötunni í Ciudad Quesada, (Laugavegurinn) þar sem er að finna gott úrval verslunum og veitingastöðum.
• 15 mínútna akstur er á næstu baðströnd.
• 20 mínútna akstur í glæsilega verslunarmiðstöð LA Zenia Boulevard sem að hluta til er utandyra.
• 20-30 mínútna akstur til iðandi stórborga á borð við Alicante, Elche og Murcia að ógleymdum sjávarbænum Torrevieja.
• 30 mínútna akstur í hinn dásamlega Rio Safari Elche dýragarð.
• Frábærir golfvellir eru í næsta nágrenni.
• Nálægð við þekktar og skemmtilegar spænskar hjólreiðaleiðir.
• Í nálægð við rómantísk sveitaþorp þar sem spænsk menning ræður ríkjum.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, sundlaugargarður, air con, bílskúr, lyfta, til afhendingar strax,
Svæði: Costa Blanca, Dona Pepa,

Kort af svæðinu