Spánareignir - Arenales Ströndin SPÁNN

47.700.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    111 m2

Tilvísunarnúmer:

692652

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR – STUTT Á GÓÐA STRÖND*

Glænýjar og vandaðar 3ja herb. íbúðir  í nýju lyftuhúsi við Los Arenales ströndina, ca. 10 mín akstur frá Alicante flugvelli og 10 km. frá miðborg Alicante. Fallegt umhverfi,  stutt á hvíta sandströnd og fallegt “promenade” meðfram ströndinni. Sameiginlegur sundlaugagarður og líkamsrækt. Einstakt tækifæri til að eignast flotta íbúð á frábærum stað. Hægt að velja um íbúð á jarðhæð með sér garði, íbúð á miðhæðum með góðum svölum og íbúð á efstu hæð með góðum svölum og einka þaksvölum. Aðeins fjórar íbúðir á hæð, allt horníbúðir með stórum svölum í tvær áttir.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277

Nánari lýsing:

Um er að ræða vel hönnuð lyftuhús með  3ja herb. fallegum íbúðum, allar með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/alrými og eldhúsi. Vandaðar innréttingar.

Lokaður glæsilegur sameiginlegur sundlaugargarður. Sér stæði og geymsla í bílakjallara.

Falleg hvít 4 km sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er beint fyrir framan húsið, og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram allri ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir, línuskauta ofl.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri. Stutt er frá Alicante flugvelli, ca. 10 mín akstur. Miðborg Alicante er í ca. 10 km. fjarlægð og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.  Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, og stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast glænýja og vandaða íbúð á frábærum stað við fallega strönd, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar í júlí 2024.

Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK: 
Íbúðir með 2 svefnh.+2 baðh. frá 318.000 Evrum (47.700.000 ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostn.
Íbúðirnar eru ca. 54 fm. og sér svalir ca. 57 fm. Samtals sérafnotaflötur ca. 111 fm.
Íbúðum á jarðhæð fylgir sér garður, íbúðum á efstu hæð sér þaksvalir.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, stutt á strönd, lyfta, þakverönd, sér garður, bílastæði, sameiginleg sundlaug, air con,
Svæði: Costa Blanca, Arenales, Alicante - Arenales ströndin,

Kort af svæðinu