Spánareignir - El Raso SPÁNN

43.900.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    96 m2

Tilvísunarnúmer:

677390

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR - SAMEIGINLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR*

Stórglæsilegar og vel hannaðar  glænýjar 4ra herb. íbúðir í El Raso, frábærum litlum bæ á Guardamar svæðinu, um 30 mín akstur suður af Alicante.  Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa og eldhús opið við borðstofu.  Fallegar innréttingar.
Hægt er að velja um íbúð á jarðhæð með sérgarði, miðhæðum með góðum svölum eða efstu hæð með  sér þaksvölum.
Sameiginlegur sundlaugargarður með frábærri aðstöðu, grænu svæði, leiksvæði fyrir börnin, paddle tennisvelli, líkamsræktarstöð og SPA.
Einkabílastæði í bílakjallara ásamt sér geymslu.
ÍBÚÐIRNAR AFHENDAS MEÐ ÖLLUM TÆKJUM Í ELDHÚSI, UPPÞVOTTAVÉL OG ÞVOTTAVÉL ÁSAMT AIR CON.
Rafmagnsgardínur og air con ásamt lýsingu fylgir öllum íbúðum.
Útieldhús fylgir íbúðum með þaksvölum.
FRÁBÆR KAUP.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected].


Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa og La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 5-10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Verslanir, veitingastaðir og þjónusta á jarðhæð, og auk þess enn meira úrval í stuttu göngufæri. Örstutt á vinsæla sítrónumarkaðinn á sunnudögum.

Þessar íbúðir eru að fara hratt enda frábært verð og staðsetning.

Verð miðað við gengi 1evra=150ISK:
Íbúðir með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Verð frá 293.000 Evrum (ISK. 43.900.000)

Á sama stað er líka hægt að velja íbúðir með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.
Verð frá 239.000 Evrum (ISK. 35.800.000)

Til afhendingar í júlí 2024-nóv.2025.
Ofan á öll verð leggst 10% skattur og ca 3% kostn. vegna stimpilgjalda ofl., þannig að samtals kostn. vegna kaupanna er ca. 13%.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sundlaugargarður, bílastæði, air con, sér garður, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, El Raso,

Kort af svæðinu