Spánareignir - Villamartin SPÁNN

44.500.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    94 m2

Tilvísunarnúmer:

674805

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
 *GLÆSILEG EINBÝLISHÚS*- *SÉRGARÐUR OG EINKASUNDLAUG*

Glæsileg ný einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Sér garður og einkasundlaug fylgir og auk þess er sundlaug í sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði. Göngufæri í  verslanir og veitingastaði.  ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 10 mín. akstursleið í La Zenia Boulevard verslanamiðstöðina. Göngufæri í Villamartin Plaza veitingahúsakjarnann. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða vel skipulagðar 94 fm. 4ra herb. eignir á tveimur hæðum ásamt 58 fm. verönd. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.  Einnig eru tvö svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæð er flott hjónasvíta með einu svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi er út á svalir.
Góður lokaður sér garður  með einkasundlaug og auk þess er aðgangur að snyrtilegum sameiginlegum sundlaugargarði.  


Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast góða nýja eign á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð frá 297.000 Evrur + kostn. (ISK. 44.500.000 gengi 1Evra/150ISK)

Á sama stað er einnig hægt að fá i falleg parhús. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkarhttp://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: einkasundlaug, sundlaugargarður, air con, sér garður, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

Kort af svæðinu