Spánareignir - Santa Rosalia Resort SPÁNN

68.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á þremur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    0

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    303 m2

Tilvísunarnúmer:

673946

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT EINBÝLISHÚS – GLÆSILEGT RESORT*
Vönduð og falleg einbýlishús á frábærum stað Í hinu nýja og glæsilega 700.000 fm., SANTA ROSALIA LAKE AND LIFE RESORT. Santa Rosalia stöðuvatnið er miðpunktur svæðisins og stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu, 16.000 fm.,  Þar er frábær aðstaða, sandströnd, eyja til að vaða út í, góð aðstaða fyrir vatnaíþróttir og ýmislegt fleira. Á svæðinu er einnig ævintýra golfvöllur, frisbígolfvöllur, göngu-, skokk og hjólaleiðir, picknick svæði, jogasvæði, leikvellir fyrir börnin og ótal margt fleira skemmtilegt. Við vatnið og golfvöllinn er nýr og glæsilegur strand- og golfklúbbur, með veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Einnig verður matvöruverslun á staðnum, en stutt er í litla bæi í kring með góðu úrvali af verslunum og veitingastöðum. Örstutt frá ströndinni og bátahöfninni (4 km. 15 mín. á hjóli) í Los Alcazares. Mar Menor golfvöllurinn er í göngufæri, en einnig eru fjölmargir fleiri golfvellir á svæðinu. Ca. 1 klst. akstur í suður frá Alicante flugvelli, 30 mín. akstur frá Corvera, nýja alþjóðlega flugvellinum í Murcia.
Frábært tækifæri til að eignast glænýtt og fallegt einbýlishús á góðum stað í sólinni á frábæru verði. Dásamleg fjölskylduparadís.

ALGJÖR NÝJUNG Á FASTEIGNAMARKAÐNUM Á SPÁNI. TILVALIÐ TÆKIFÆRI FYRIR FJÁRFESTA.
Fyrstu áfangar seldust upp á nokkrum dögum og nýir áfangar sem koma í sölu eru fljótir að seljast upp.
Hjá Spánareignum er hægt að skrá sig á forsölulista og geta þá valið gott hús áður en þau fara í almenna sölu.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.


Nánari lýsing:
Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi. Stór verönd, sér garður með  einkasundlaug.  Tvennar svalir út frá svefnherbergjum á efri hæð. Bílastæði. Óinnréttaður kjallari fylgir og er hægt að láta innrétta hann á ýmsa vegu, td. með svefnherbergi, baðherbergi, vinnuaðstöðu eða tómstundarrými gegn aukagjaldi.
Jarðhæð: Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu opnu rými og útgengi út á veröndina sem er með góðu aðgengi að einkagarði með sundlaug. Gott svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð: Stór hjónasvíta með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi út á góðar svalir og annað svefnherbergi einnig með sér baðherbergi og útgengi út á sér svalir.
Kjallari: Rúmgott opið rými sem hægt er að láta innrétta að eigin vali. Útgengi út á "English patio" sem gefur góða byrtu og loftun.

Sérlega metnaðarfull hönnun þar sem tekið er tillit til umhverfis og náttúru. Svæðið er gróið og fallegt og auk þess verður eitt tré gróðursett fyrir hvern viðskiptavin.
Vandaðar og fallegar innréttingar. Hiti í gólfum í baðherbergjum.
Helluborð, bökunarofn, örbylgjuofn og vifta í eldhúsi fylgir. Einnig ísskápur, uppþvottavél og þvottavél.
Einnig lýsing, bæði inni og úti.

Hægt er að fá húsin fullbúið húsgögnum gegn vægu aukagjaldi, þannig að ekkert er eftir nema að kaupa í matinn og flytja inn.

Örstutt göngufæri er að Santa Rosalia stöðuvatninu með frábærri sólbaðsaðstöðu, ströndum, og möguleika á ýmsum skemmtilegum vatnaíþróttum.
Ca. 15 mín. tekur að hjóla niður á á skemmtilegu göngugötuna í Los Alcazares, sem liggur niður á fallega sandströnd. Fjöldi verslana og veitingastaða eru þar á svæðinu. Meðfram ströndinni er margra kílómetra langt “promenade” sem býður upp á skemmtilega göngutúra. Glæsileg smábáta og snekkjuhöfn og fjölbreytt mannlíf. Fjölmargir vinsælir og skemmtilegir golfvellir eru í næsta nágrenni og hinn vinsæli Mar Menor er í göngufæri frá Santa Rosalia svæðinu.

Verð:
3 svefnh. + 3 baðh. + kjallari. verð 459.000 Evrur eða 68.800.000ISK (miðað við 1 Evra = 150ISK)
Aðeins eitt hús eftir á þessu verði.

Þægileg greiðslukjör.
Bankaábyrgð á öllum greiðslum.
Afhendingartími í mars 2025.

Los Alcazares, sem er í næsta nágrenni, er ekta spænskur strandbær með fjölbreyttu bæjarlífi, útimarkaði og götuhátíðum og gefst hér einstakt tækifæri til að eignast vandað og fallegt einbýlishús með nútímaþægindum í sjarmerandi spænsku umhverfi. Skólar og heilbrigðisþjónusta í næsta nágrenni.
Los Alcazares stendur við Mar Menor, lítið innhaf frá Miðjarðarhafinu, og er þar mikil veðursæld.  Að meðaltali  eru þar um 305 sólardagar, 30 skýjaðir og 30 rigningardagar á ári.


SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: strönd, ný eign, sér garður, kjallari, golf,
Svæði: Costa Calida, Los Alcazares, Santa Rosalia, Mar Menor,

Kort af svæðinu