Spánareignir - Las Colinas Golf SPÁNN

71.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    229 m2

Tilvísunarnúmer:

670052

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGT PARHÚS Á EINNI HÆÐ - FRÁBÆRT VERÐ"

SENNILEGA EIN BESTU KAUPIN Á LAS COLINAS Í DAG:
Vandað og fallegt parhús á einni hæð á frábærum stað í lokuðum botlanga í Encina hverfinu á Colinas golfvallasvæðinu. Fallegt gróið umhverfi. Stór einkagarður með einkasundlaug.
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast  gott hús á þessum vinsæla stað á frábæru verði. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.
GOTT SKIPULAG ALLT Á EINNI HÆÐ,  þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús og borðstofa í opnu og björtu rými, vel tengt yfirbyggðri verönd/sólstofu með góðri tengingu við stóran suðurgarð.  
Stór sér garður með einkasundlaug og öryggishliði fyrir sundlauginni.
Góð aðstaða til að grilla og njóta góða veðursins, en á Spáni skín sólin í meira en 300 daga á ári.
Frábær sólbaðsaðstaða.
Sjálfvirkt vökvunarkerfi með tímastillingu er í garðinum.
Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Allar upplýsingar gefur Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. [email protected], Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 00354 777 4277 og Berta Hawkins, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali. GSM 0034-615 112 869. [email protected]



Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d.   La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða glæsilega eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Air con með kælingu og hitun. Einnig ofnakerfi.
Notalegur arinn í stofunni.
Geymsla og ýmislegt fleira sem gerir húsið notalegt.


Verð 475.000 evrur  + kostn. (71.200.000 ISK + kostn,  gengi 1Evra=150ISK)
Húsið er 112 fm.
Verandir 117 fm
Samtals byggt rými 229 fm.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir.
Húsið er í endursölu, en hefur fengið gott viðhald og er í góðu ástandi.
Húsið selst með húsgögnum, bæði inni og úti, húsbúnaði og og rafmagnstækjum.

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar:  www.spanareignir.is
Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, air con, ofnakerfi, golf, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Kort af svæðinu