Spánareignir - Vistabella Golf SPÁNN

53.800.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á einni hæð

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    106 m2

Tilvísunarnúmer:

669120

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS VIÐ GOLFVÖLL* *SÉR GARÐUR OG EINKAÞAKVERÖND*

Glæsileg einbýlishús á einni hæð, í Vistabella, snyrtilegum, litlum bæ, ca. 40 mín akstur frá Alicante. Húsin eru vel skipulögð, með þakverönd, geymslu og sér garði með einkasundlaug. Húsin eru með 3 svefnherbergjum og 2  baðherbergjum, vel skipulögð og rúmgóð.
Um 15-20 mín akstur á La Zenia ströndina. Stutt göngufæri á hinn fallega Vistabella 18 holu golfvöll og auk þess fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi. Örstutt labb í verslanir og veitingastaði. Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. Lokað svæði með öryggisgæslu 24/7. 

FRÁBÆRT VERÐ

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,[email protected]. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Hjónasvíta með fataskáp, sér baðherbergi og útgengi út í garð.
Tvö auka svefnherbergi með góðum fataskápum og baðherbergi.
Þvottahús og auk þess geymsla.

Út frá stofunni er stór verönd og góður lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar og grilla.
Einkasundlaug. Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

Verð:
Verð frá 359.000  Evrur. + kostn. (106 fm. 53.800.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)


Á sama stað er einnig hægt að fá 5 herb. hús, þe. með 4 svefnherbergjum og 3 baðherbergjum.
5 herbergja (144 fm. 4 svefnh. og 3 baðh.): Verð frá 429.000  Evrur. + kostn. (64.300.000ISK miðað við gengi 1E=150ISK)

Innifalið í verði eru 20 golfhringir á Vistabella golfvellinum.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með hagstæðu láni frá spænskum banka.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, einkasundlaug, þakverönd, golf, bílastæði, lokað svæði,
Svæði: Costa Blanca, Vistabella,

Kort af svæðinu