Spánareignir - Villamartin SPÁNN

67.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    3

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    155 m2

Tilvísunarnúmer:

668097

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Á VINSÆLUM STAÐ* – *GOTT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  með lokuðum garði verönd út frá stofu og einkasundlaug í hinu vinsæla Blue Lagoon hverfi,  um 50 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús.  Stórar svalir út frá svefnherbergjum á efri hæð og auk þess þaksvalir.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. [email protected] og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. [email protected]

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými . Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi út á stórar svalir frá báðum svefnherbergjum. Þaksvalir með flottu útsýni.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Fullfrágengin lóð með einkasundlaug.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Flottir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina  og  í vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Verð frá 399.000 evrum  + kostn. (ISK 59.800.000 + kostn. gengi 1Evra=150ISK.)
Afhending er eftir 12-14 mánuði. Aðeins örfá hús í boði.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Blue Lagoon,

Kort af svæðinu