Spánareignir - Villamartin SPÁNN

49.300.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Einbýli / Einbýlishús á tveimur hæðum

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    84 m2

Tilvísunarnúmer:

660095

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
 *GLÆSILEG EINBÝLISHÚS*- *SÉRGARÐUR OG EINKASUNDLAUG*

NÝR ÁFANGI VAR AÐ KOMA Í SÖLU:
Glæsileg einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað á hinu vinsæla Villamartin svæði. Sér garður og einkasundlaug fylgir og auk þess er sundlaug í sameiginlegum sundlaugargarði. Sér bílastæði. Göngufæri í  verslanir og veitingastaði.  ca. 40 mín akstur frá Alicante flugvelli. Ca. 10 mín akstur á fallega strönd og 10 mín. akstursleið í La Zenia Boulevard verslanamiðstöðina. Göngufæri í Villamartin Plaza veitingahúsakjarnann. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast góða eign á fínu verði í frábæru umhverfi. Ótal góðir golfvellir í næsta nágrenni.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.

Nánari lýsing:

Um er að ræða vel skipulagðar 4ra herb. eignir á tveimur hæðum. Á neðri hæð er stofa og borðstofa í opnu rými, vel tengt eldhúsi.  Einnig er svefnherbergi og baðherbergi á neðri hæðinni. Á efri hæð eru tvö góð svefnherbergi ásamt baðherbergi. Útgengi er út á svalir frá öðru svefnherberginu.
Góður lokaður sér garður framan við húsið með einkasundlaug og auk þess er aðgangur að snyrtilegum sameiginlegum sundlaugargarði.  

Lagt er fyrir air con sem bæði kælir og hitar.
Fullkláraður garður með einkasundlaug.
Útilýsing.
TILBÚIÐ SÝNINGARHÚS Á STAÐNUM.

Falleg hvít  sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í  stuttu akstursfæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Alicante flugvöllur er í ca. 40 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast góða nýja eign á frábærum stað, stutt frá  öllu því sem gerir dvölina á Spáni  skemmtilega.

Verð frá: 329.000 Evrum (ISK. 49.300.000 gengi 1Evra/150ISK)

Tilbúin strax eða eftir 12-18 mánuði.
Hægt að festa sér hús með 6.000 evru staðfestingargjaldi.

Á sama stað er einnig hægt að fá falleg parhús. 
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: einkasundlaug, sundlaugargarður, air con, sér garður, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,

Kort af svæðinu