Spánareignir - Los Alcazares SPÁNN

31.700.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    2

  • Fermetrastærð

    99 m2

Tilvísunarnúmer:

646780

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FRÁBÆRAR ÍBÚÐIR NÁLÆGT GOLFI OG STRÖND* - *GOTT VERÐ*

Glænýjar og vandaðar sérlega rúmgóðar 3ja herb. íbúðir á frábærum stað í lyftuhúsi í Los Narejos, San Javier, nálægt fallegri strönd og frábærum golfvelli, Roda Golf, ca. 60 mín. akstur í suður frá Alicante flugvelli rétt við hinn vinsæla bæ Los Alcazares. Fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum í göngufæri. Ásamt Roda golf eru fleiri góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Lo Romero og ótal fleiri. 

Allar upplýsingr veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur, [email protected]. GSM 777 4277.


Flottur lokaður sundlaugargarður og góð leikaðstaða fyrir börnin.

Rúmgóðar og vel hannaðar íbúðir.
Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Stórar svalir með öllum íbúðunum, og auk þess sér þaksvalir með íbúðum á efstu hæð og sér lokuð verönd með íbúðum á neðstu hæð.

Sér stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum.

VERÐ miðað við gengi 1Evra=145ISK:
3ja herb íbúð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum frá 219.000 evrum ( ISK 31.700.000) + kostn. við kaupin (ca.13%)

Á sama stað er einnig hægt að fá 4ra herb. íbúðir, með 3 svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Verð frá 265.000 evrum (ISK 38.400.000) + kostn. viö kaupin (ca. 13%)

Hægt er að skoða tilbúna sýningaríbúð á staðnum, fullbúna húsgögnum.
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar í desember 2024.

Einstakt tækifæri til að eignast góða og vel staðsetta íbúð á fínu verði.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka á góðum kjörum.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður,  útsýni, air con, bílastæði, þakverönd, sér garður, strönd, golf,
Svæði: Costa Blanca, San Javier, Los Narejos, Los Alcazares,

Kort af svæðinu