Spánareignir-san Pedro Del Pinatar SPÁNN

38.200.000 Kr.

  • Tegund eignar

    Fjölbýli / Fjölbýlishús með sérinngangi

  • Fjöldi baðherbergja

    2

  • Fjöldi svefnherbergja

    3

  • Fermetrastærð

    82 m2

Tilvísunarnúmer:

635493

REIKNA ÚT LÁN

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR Á FRÁBÆRUM STAÐ*

Bjartar og vel hannaðar  nýjar 4ra herb.  íbúðir á frábærum stað í San Pedro del Pinatar, sjarmerandi og fallegum spænskum strandbæ, ca. klst akstur í suður frá Alicante. Hægt er að velja neðri hæð með sér garði eða íbúðir á efri hæð með sér þakverönd. Lokaður garður með sameiginlegri sundlaug. Sér bílastæði inni á lokaðri lóð.  Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Lo Romero, Roda golf, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Örstutt göngufæri í miðbæinn þar sem er úrval verslana og veitingastaða. Stutt rölt niður á fallega strönd með iðandi mannlífi, bátahöfn og fleiru skemmtilegu.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. [email protected]. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. [email protected]. GSM 777 4277.

Skipulag:

Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta.  Þrjú svefnherbergi, eitt með sérbaðherbergi og auk þess annað baðherbergi. Þriðja herbergið tengist stofunni á skemmtilegan máta með rennihurð, þannig að það nýtist líka sem sjónvarpsherbergi eða skrifstofa fyrir þá sem vilja vinna heima.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun fylgir.

Íbúðum á neðri hæð fylgir lítill sér garður við húsið þar sem hægt er að njóta sólarinnar og mögulegt er að vera með útieldhús fyrir aukagjald.
Íbúðum á efri hæð fylgir stór sér þakverönd með frábærri sólbaðsaðstöðu og útieldhúsi, sem fylgir með í verðinu.

Sérmerkt bílastæði á lokaðari lóð fylgir og auk þess  sér geymsla.

Verð:
Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi,
Neðri hæð með sér garði: verð frá  264.950 Evrur+kostn. (38.200.000 ISK miðað við gengi 1E=145ISK)
Efri hæð með sér þaksvölum og tengi fyrir heitan pott: verð frá 309.950 Evrur+kostn. (44.900.000 ISK miðað við gengi 1E=145ISK)

Mikið innifalið, td. rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél. Lýsing ofl.
Einnig er hægt að velja íbúðir þar sem húsgögn fylgja með.
Hægt er að fá íbúðir tilbúnar til afhendingar við kaupsamning eða íbúðir í byggingu sem afhendast 2024 eða 2025, eftir því hvaða íbúð er valin. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sameiginlegur sundlaugargarður, þakverönd, sér garður, air con, ný eign, bílastæði,
Svæði: Costa Blanca, San Pedro del Pinatar,

Kort af svæðinu